Skemmtilegt föndur við sjónvarpið

Kristjana Helga sendi inn þessa síðu um hollenska söngvara, eldri og yngri, Dutch divas Þar má lesa um þá, skoða myndir og heyra tóndæmi. 

Til er íslenskur söngvaravefur hér en þar eru aðeins söngvarar sem eru í fullu fjöri.  Væri ekki upplagt að gera svona síðu um íslenska söngvara eins og þessa hollensku? Hver og hver og vill og verður?  Það er auðvitað talsvert verk að safna slíku efni, en kannski gætu nokkrir tekið sig saman og leikið sér að þessu í tómstundum?  Þakklátt væri það og skemmtilegt.  Upp með sokkana!