Kristinn Sigmundsson í Hallgrímskirkju 31. des. kl. 17

 Gestur Trompeteria-hópsins – þeirra Ásgeirs Steingrímssonar, Eiríks Arnar Pálssonar og Harðar Áskelssonar – á áramótatónleikunum í Hallgrímskirkju kl. 17 verður Kristinn Sigmundsson að þessu sinni.  Hann syngur m.a. aríur úr Messíasi og Jólaóratóríunni. Flottur endir á glæsilegu ári hjá Kristni.  The Trumpet shall sound!