Ítalska ljóðabókin í Salnum 4. mars

4. mars 2006. Á laugardaginn gefst einstakt tækifæri til að hlusta á þau hjónin Hönnu Dóru Sturludóttur, sópran, og Lothar Odinius, tenór, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara, flytja Ítölsku ljóðabókina eftir Hugo Wolf. Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi á laugardaginn kl. 16. Þetta ætti enginn söngkennari eða söngnemandi að láta fram hjá sér fara.