Hallveig og Jón Svavar í Neskirkju mið. 21. apríl kl. 20

  Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Jón Svavar Jósefsson barítón verða einsöngvarar í Requiem eftir Gabriel Fauré, ásamt Kór Neskirkju og Birni Steinari Sólbergssyni, orgelleikara í Neskirkju miðvikudaginn 21. apríl kl. 20. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson.
Á tónleikunum verða einnig fluttar nokkrar mótettur m.a. eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur og Charles Villiers Stanford.

Miðar seldir við inngang og í forsölu hjá félögum í Kór Neskirkju.
Miðaverð kr. 1.500.