Gréta Hergils í Hafnarborg fimmt. 3. feb. kl. 12

 Gréta Hergils Valdimarsdóttir syngur á fyrstu hádegistónleikum ársins í Hafnarborg, ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara. Á dagskránni verða aríur eftir Bellini, Donizetti, Verdi og jafnframt verður dagskráratriði sem væntanlega kemur gestum á óvart. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið opnað kl. 11.30.