David Jones til Íslands í september

Egill Árni Pálsson (sem söng á tónleikunum hennar Kiri í fyrra og var stjarna í Nótt í Feneyjum) hefur lagst í víking nokkrum sinnum til New York til að njóta leiðsagnar David Jones. sem margir kannast við.  Hann hefur nú fengið David til að  koma til Íslands í haust til að halda námskeið,  masterklass og einkatíma.  Þetta verður einhvers staðar á bilinu 20.-30. sept.

Kostnaður verður í kringum $100 (u.þ.b. 7,500 kr.) fyrir virka þátttakendur, en $15-$25 fyrir áhorfendur  Einkatíminn verður á $120.- (u,þ,b, 9000 kr.)

Líklegast verður þetta gert í samvinnu við Söngskólann í Reykjavík, en tölvupóstur Egils Árna er egillap@islandia.is

Vefurinn hans Davids er mjög lifandi.  Þar eru margar áhugaverðar og gagnlegar greinar, af nýlegum greinum má nefna "Striving for Balance in Teaching Singing" .