David Bartleet, Ann Williams King og Marco Belluzzi í SSD

  DAVID BARTLEET og ANN WILLIAMS KING, sem eru mörgum að góðu kunn eftir námskeið þeirra sl. vetur, verða með einkatíma í Söngskóla Sigurðar Demetz frá 5 sept. – 17 sept. Þátttaka er öllum heimil.
1 klst. kostar kr. 5000.-
Þeir sem hafa áhuga geta bókað tíma í síma 893 7914 og 552 0600.

 

 
Ég er líka að fá hingað repetiteur frá Bologna sem hefur unnið í óperuhúsum t.d. í Parma og víðar.
Hann kom hingað í sumar með Margréti Ponzi og varð ástfanginn af landinu og langar til að vera hér í vetur.
Hann heitir MARCO BELLUZZI. Það verður hægt að panta tíma hjá honum líka en hann kemur 13. október.

Guðbjörg Sigurjónsdóttir, skólastjóri