STYRKÞEGI TIL BAYREUTH 2011

Stjórn FÍS hefur ákveðið að taka þátt í kostnaði við að senda styrkþega á Wagner hátíðina í Bayreuth sumarið 2011. Umsóknareyðublöð fást hjá Selmu Guðmundsdóttur, Vesturgötu 36b 101 R., selmag@centrum.is

Umsóknir þurfa að berast fyrir 15. febrúar.

    Richard Wagner félagið á Íslandi, sem starfað hefur frá árinu 1995, mun á komandi ári í fjórtánda sinn styrkja ungan íslenskan tónlistar- eða leiklistarmann til að sækja Wagnerhátíðina í Bayreuth.

  Styrkveiting félagsins felst í því að það leggur fram ákveðið framlag til Richard Wagner Stipendienstiftung í Bayreuth og fær í staðinn að senda Íslending á hátíðina. Styrkþegar eiga að vera á aldrinum 18 til 35 ára.

  Sá sem fyrir valinu verður í sinn hlut án endurgjalds:

 

  1. Miða á sýningar á Tannhäuser, Meistarasöngvarana og Parsifal 10.- 13.  ágúst.
  2. Aðgang að undirbúningsfyrirlestrum á sýningarnar.
  3. Leiðsögn um Richard Wagner og Franz Liszt safnið í Bayreuth.
  4. Leiðsögn um Festspielhaus.
  5. Leiðsögn um borgina Bayreuth
  6. Sameiginlegan hádegisverð styrkþeganna alla dagana.
  7. Styrkþegaveisla 11. ágúst.

 

   Tekið skal fram að auk þess, sem styrkþegi fær að njóta án endurgjalds samkvæmt ofangreindu, þá er höfð milliganga um að útvega gistingu á hóflegu verði.

 

Menntamálaráðuneytið hefur auk þessa á undanförnum árum veitt R. Wagner félaginu styrk  sem styrkþegar, búsettir á Íslandi, hafa fengið upp í ferðakostnað.

 

Styrkþegar til þessa hafa verið:

Anna M. Magnúsdóttir tónlistarfræðingur og semballeikari 1998

Bjarni Thor Kristinsson bassi 1999

Tómas Tómasson bassi 2000

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og píanóleikari 2001

Jónas Guðmundsson tenór (í námi í Berlín) 2002

Davíð Ólafsson bassi. 2003

Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór 2004

Helga Rós Indriðadóttir sópran 2005

Þóra Einarsdóttir sópran 2006

Elísa Vilbergsdóttir sópran 2006

Egill Árni Pálsson tenór 2007

Þorvaldur Þorvaldsson bassi 2008

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri 2009

Júlíus K. Einarsson barítón 2010

 

Til nánari skýringar:

   Richard Wagner reisti og hannaði, eins og kunnugt er  sérstakt óperuhús, Festspielhaus í Bayreuth, til flutnings verka sinna. Þar er á hverju sumri haldin óperuhátíð og er gífurleg eftirspurn eftir miðum á hana, enda koma þarna fram fremstu listamenn heims á sviði tónlistar og óperusviðssetninga.

   Það var í Bayreuth, sem hugmyndir Wagners fullkomuðust um óperuhús, sem skilað gæti verkum hans í þeirri umgjörð sem hann sá fyrir sér. Auk þess taldi hann að staðsetning hússins í þessum litla bæ, fjarri skarkala heimsins, veitti óperugestum þá ró og einbeitingu sem þyrfti til að geta notið verkanna og skilið þau til fulls.

   Richard Wagner hafði í raun hugsað sér Bayreuthhátíðina sem hátíð fólksins eða almennings, líkt og tíðkaðist 2000 árum áður í Grikklandi. Í samræmi við þetta vildi hann ekki hafa neinn aðgangseyri að hátíðinni. Þegar þessi sýn hans gekk ekki upp, af augljósum fjárhagsástæðum, varð sú hugmynd til að a.m.k. fámennum hópi útvaldra yrði boðið frítt á hátíðina. Frá árinu 1882 hefur Richard Wagner Stipendienstiftung í Bayreuth, sem Wagner kom sjálfur á fót, haft það sem aðalmarkmið að stuðla að því að ákveðnum hópi ungra tónlistar- og sviðslistarmanna sé gert kleift að sækja Bayreuthhátíðina. Fjármögnun þessarar fallegu hugmyndar meistarans liggur nú að mestu hjá Wagnerfélögum víða um heim, en fyrrgreind stofnun heldur utan um fyrirtækið.

    Á undanförnum árum hafa 250 styrkþegar sótt hátíðina heim. Flestir, eða nálægt 190, koma frá þýskum Wagnerfélögum, 36 frá öðrum félögum í V-Evrópu, en afgangurinn frá A-Evrópu eða annars staðar frá.

 

 

Með kærri kveðju

 

 

______________________________

 

Selma Guðmundsdóttir