JAZZSÖNGSMIÐJA f. klassíska söngvara í Gerðubergi 20. mars

 Kristjana Stefánsdóttir heldur jazznámskeið fyrir klassískt menntaða söngvara í Gerðubergi 20. mars kl. 13-17. Kjartan Valdemarsson píanóleikari verður píanóleikari og meðkennari.

Þau Kristjana og Kjartan hafa verið samkennarar við söngdeild Tónlistarskóla FÍH í um 10 ár og hafa margir efnilegir tónlistarmenn útskrifast frá skólanum undir þeirra handleiðslu.

Unnið verður með öll helstu stílbrigði jazzins. Einnig verður farið í allan rythma, hvernig maður vinnur með jazzbandi, hvernig lög eru talin inn, hver munurinn er á ballöðu, medium swing, uptempo, latin o.s.frv.  Öll helstu trikkinn sem hver rytmískur söngvari þarf að hafa verða sett upp á borð.  Þetta er tilvalið tækifæri fyrir klassíska söngvara/kennara að kynna sér þennan stíl.  

10 virkir nemendur komast að en námskeiðið er opið til áheyrnar öllum þeim sem hafa áhuga á jazztónlist.
Nemendur þurfa að hafa undirbúið a.m.k. tvö lög í mismunandi stíl og hafa með sér nótur af þeim í sinni tóntegund.

Þátttökugjald er 5.000 kr. Skráning er hafin á gerduberg@reykjavik.is

Nánari upplýsingar um söngsmiðjuna veitir Kristjana Stefánsdóttir, svalasjana@gmail.com

Sjá nánar um söngsmiðjuna, Kristjönu og Kjartan hér .

Elín Ósk með námskeið í Miðstöð símenntunar Hf. 7.-11. feb.

Elín Ósk Óskarsdóttir heldur söngnámskeið í klassískum söng í samstarfi við Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði. Námskeiðið er fyrir söngvara og nemendur á lokastigum í söng og stendur yfir 7.-11. febrúar 2011. Hóptímar á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum kl. 10-13. Einnig er boðið upp á einkatíma og áheyrnartíma. Píanisti á námskeiði er Antonia Hevesi. Verð fyrir heilt námskeið er 27.500 kr. Innritun þarf að eiga sér stað í Miðstöð símenntunar í síma 585-5860 fyrir 1. febrúar. Nánari uppl. veitir Elín Ósk í símum 565-5885 og 862-4868

Elísabet og Selma með ókeypis námskeið í LHÍ 11.-12. feb.

 Gleðilegt ár, ágætu skólastjórar og söngkennarar !

Með þessu bréfi viljum við benda á söngnámskeið Listaháskóla Íslands, sem haldið verður í húsakynnum skólans að Sölvhólsgötu 13, þann 11. og 12 febrúar 2011.
Námskeiðið er liður í kynningarstarfsemi skólans.
Kennsla fer fram, bæði í einkatímum og hóptímum. Söngnemum á framhaldstigi er boðin þátttaka og er öll kennslan ÓKEYPIS, þessa helgi.
 
Söngkennsla  á námskeiðinu er í höndum Elísabetar Erlingsdóttur og píanóleik annast Selma Guðmundsdóttir.
Þeim sem vilja taka þátt í námskeiðinu, er bent á að senda nafn sitt og símanúmer til LHÍ á tölvupóst :  soleybjort@lhi.is  fyrir 3. febrúar, 2011. 

Virðingarfyllst,

Elísabet Erlingsdóttir
Fagstjóri söngdeildar LHÍ.