LAGALISTAR


Hér fyrir neðan eru leiðbeinandi listar fyrir Framhaldsflokk, Háskólaflokk og Opinn flokk
ásamt tenglum á verk tónskálds ársins sem árið 2024 er Hildigunnur Rúnarsdóttir.

ATHUGIÐ! Að undanskildum lögum eftir tónskáld keppninnar er hér aðeins um leiðbeinandi lista að ræða.
Þátttakendur mega velja hvaða lög sem er til að syngja svo lengi sem þau samræmast erfiðleikastigi viðkomandi keppnisflokks.



TÓNSKÁLD ÁRSINS:
Hildigunnur Rúnarsdóttir

Hildigunnur Rúnarsdóttir stundaði nám við tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík með tónsmíðar sem aðalgrein og lauk þaðan Bachelors-prófi vorið 1989.  Síðan nam hún tónsmíðar, hjá Professor Günter Friedrichs í Hamborg og Svend Hvidtfelt Nielsen í Kaupmannahöfn.  Hildigunnur hefur starfað mikið með ýmsum kórum, þ.á.m. sönghópnum Hljómeyki og Dómkórnum í Reykjavík. Helstu verk eru m.a. barnaóperan Gilitrutt, Blandaðir dansar fyrir hljómsveit, Fiðlukonsert, Konsert fyrir orgel strengi og slagverk, Messa í minningu Guðbrands Þorlákssonar, fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit (tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2003) og kammeróperan Traversing the Void, ásamt tónlist við fimm heimildamyndir í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen.  Einnig liggur eftir hana fjöldi kórverka og sönglaga. 


Hildigunnur starfar nú við tónsmíðar, kennslu og söng í Reykjavík


LÖG HILDIGUNNAR ER HÆGT AÐ NÁLGAST Á EFTIRFARANDI SLÓÐUM:

NÓTNAVEFUR TÓNLISTARMIÐSTÖÐVA

Framhaldsstig

Háskólastig / Opinn flokkur