Heim

Velkomin!

Kæru félagar!

Heimasíðunni er haldið úti af Félagi íslenskra söngkennara. Félagið var stofnað 9. okt. 2006 og er ætlað að vera vettvangur fyrir söngkennara til að ræða saman um fagið og skiptast á upplýsingum. Þá er félagið aðili að alþjóðasamtökum söngkennara og gefast þar möguleikar fyrir félaga til að hafa samband við kollega erlendis, fara á ráðstefnur og námskeið o.s.frv.

Heimasíðan er lykilvettvangur fyrir starfsemi félagsins, hér eiga allir jafn auðvelt með að koma inn og taka þátt – hvar sem þeir búa – og leggja til upplýsingar í upplýsingaveituna. Hér má ræða allt sem tengist söng og söngkennslu, segja frá upplifunum, tónleikum, óperusýningum, söngvurum, söngkennsluaðferðum o.s.frv. Efni sendist á bergthor.palsson@gmail.com  Einnig má spjalla á FÍS-ibelg hér til vinstri, en hann er öllum opinn. Óskað er eftir því að fólk skrifi þar undir nafni.
Endilega látið í ykkur heyra, heimasíðan verður hvorki betri né verri en það sem við, hvert og eitt okkar, leggjum af mörkum.

Stjórnin

Sumarfrí

fisis.is fer í sumarfrí 2. júní. Sjáumst hress og kát þegar kennsla hefst á ný!

 
Með saltvatn og ótta í farteskinu, um hjálækningar óperusöngvara
Í afar merkri, læsilegri og athyglisverðri ritgerð (sem er lokaverkefni í BA-námi í þjóðfræði í HÍ) fjallar Ólöf Breiðfjörð (eiginkona Gunnars Guðbjörnssonar) um hjálækningar nokkurra íslenskra óperusöngvara, en ritgerðin byggist á viðtölum við sjö söngvara, þau Sverri Guðjónsson, Huldu Björk Garðarsdóttur, Sólrúnu Bragadóttur, Gunnar Guðbjörnsson, Ingveldi Ýri Jónsdóttur, Ágúst Ólafsson og Bjarna Thor Kristinsson. Einnig styðst hún við ýmsar rannsóknir sem snúa að hjálækningum og heilsufarsvandamálum óperusöngvara. 

Í útdrætti segir ennfremur:

„Til að stuðla að raddlegu heilbrigði leitast viðmælendur mínir við að halda líkamlegri og andlegri heilsu í jafnvægi. Líkamlegir kvillar sem söngvarar reyna að forðast eða halda niðri eru til dæmis kvef, bakflæði, þurr slímhúð og þreyta. Söngvararnir nota meðal annars jurtir, te, vatn og saltvatnsskolun en forðast notkun sterka og fúkkalyfja vegna aukaverkana sem hafa slæm áhrif á heilsu og rödd. Þá er andlegt jafnvægi nauðsynlegt söngvurum enda veikist ónæmiskerfi líkamans ef streita og ótti þjakar þá. Viðmælendur mínir íhuga, biðja, gera verndandi æfingar og nota jákvæða hugsun til að halda andlegu jafnvægi og get á þann hátt verndað rödd sína.

Hjálækningar óperusöngvara eru starfsgreinahefð þeirra. Það eru einnig reynslusagnir og ráðleggingar um hjálækningar sem söngvarar gefa hver öðrum. Um leið og mikilvægum upplýsingum er miðlað styrkist hópurinn enda sameiginlegt markmið söngvara að stuðla að góðri raddheilsu.“

Ritgerðina má lesa í heild sinni hér skemman.is

Ef fólk kýs að kaupa útprentað eintak, er hægt að hafa samband við Ólöfu á netfangið

 
Að syngja fyrir í hinum stóra heimi
 Mig langar að benda á frábæra heimasíðu sem getur hjálpað allsvakalega við að finna tækifæri til að syngja fyrir í hinum stóra heimi. 

Ég fann þetta um daginn og skráði mig.   Það kostar reyndar 50$ fyrir árið, en maður er að fá rosalega mikið fyrir þann pening.

Það er allavega allt í lagi að láta fólk vita af þessu, þar sem þetta hjálpar mjög mikið.

Síðan sem um ræðir heitir YAP Tracker http://www.yaptracker.com

Bestu kveðjur,
Egill Árni
 

Könnun

Hvað eru margir inni?

(C) 2010 Félag íslenskra söngkennara
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.