Afmælistónleikar Mozarts í Grafavogskirkju

Afmælistónleikar Mozarts í Grafarvogsvirkju

Afmælistónleikar Amadeusar Mozart  verða haldnir  þann 27. janúar  nk. í Grafarvogskirkju kl 20 en þá verða liðin 257 ár frá fæðingu þessa mikla meistara. Full ástæða er til þess að minnast Mozarts á hverju ári en hann breytti músík heimsins  á sinni stuttu æfi (1756-1791) og hefur tónlist hans enn mótandi áhrif á allt tónlistarlíf.

Söngvararnir Gréta Hergils sópran og Ágúst Ólafsson baritón syngja ásamt með, Matthíasi Stefánssyni, fiðluleikara, Eydísi Franzdóttur, óbóleikara og Antoníu Hevesi, píanóleikara.

Á efnisskrá tónleikana er modettan  Exsultate  jubilate K165, fiðlueinleikurinn Rondo í D-dúr K250, og dúettar og aríur úr óperunum Don Giovanni og Brúðkaupi Figarós.

Gréta Hergils hefur sungið víða opinberlega undanfarin ár t.d. í Íslensku óperunni, síðast  með hlutverk í Il Trovadore,  Frostrósum klassík, með Tenórunum þremur, á skemmtunum ýmis konar og við kirkjulegar athafnir. Einnig gaf hún nýverið út diskinn Ave María, en þar er að finna ellefu Ave Maríu lög samin frá 16 öld til dagsins í dag.

Ágúst Ólafsson hefur þrisvar verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna og hlaut Grímuverðlaunin 2010 sem Söngvari ársins fyrir hlutverk sitt í óperunni Ástardrykknum  Ágúst söng hlutverk Papagenó í Töfraflautunni í haustið 2011 en syngur nú einnig víða á erlendri grund.

Matthías Stefánsson  leikur með hljómsveitunum Pöpunum og South River Band. Hann hefur tekið þátt í fjölda tónleikauppfærsla m.a. í  Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku Óperunni, með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur leikið inn á fjölmargar plötur, þar á meðal fyrir Sigur Rós, Björgvin Halldórsson, Ríó Tríó, Bjarna Arason, Magna og Ave Maríu disk Grétu Hergils.

Antonía Hevesí er listrænn stjórnandi og píanóleikari hádegistónleikaraðar Hafnarborgar. Hún  starfar sem orgel- og píanómeðleikari á Íslandi og æfingapíanisti við Íslensku óperuna.

Eydís Franzdóttir hefur komið fram sem einleikari með kammerhópum og hljómsveitum víða um Evrópu, Norður-Ameríku og á Íslandi. Hún hefur látið að sér kveða við tónleikahald landsins, er m.a. meðlimur í Caput-hópnum og skipuleggjandi 15:15 tónleikasyrpunnar í Norræna húsinu.

 Motzart samdi Exsultate jubilate aðeins 17 ára gamall undir áhrifum frá ítölskum óperum þess tíma. Þær óperur eru nú fallnar í gleymsku og dá en módetta Mozarts er enn jafn fersk enda eitt glæsilegasta kirkjutónverk allra tíma.

Aðgöngumiðar verða seldir í kirkjunni við innganginn fyrir tónleikana og er miðaverðið kr. 1.000.-